Já við erum nú loks búnar með öll verkefnin og það er þvílíkur léttir.
Þetta gekk ótrúlega vel þrátt fyrir að þessi verkefni hafi vaxið mér svolítið í augum.
Þegar ég loks komst til þess að vinna verkefnin þá fannst mér þetta bara ágætt, en ég er samt enginn snillingur í þessu dæmi.
Núna get ég þó klórað mig fram úr hlutum sem ég treysti mér ekki til þess að gera áður en ég byrjaði í þessum áfanga.
Mér finnst þó að þessi áfangi megi vera annars staðar í náminu. Þá á ég við að mér þætti mun hentugara að hafa hann fyrr í náminu. Ekki á næst síðasta ári.
Takk fyrir góðan vetur!
apríl 26, 2009 klukkan 8:13 pm |
Áldrei þessu vant er ég samála þér, ef þetta námskeið væri fyrr þá myndi það nítast okkur í náminu. ;D