Mikill léttir!

apríl 25, 2009

Já við erum nú loks búnar með öll verkefnin og það er þvílíkur léttir.

Þetta gekk ótrúlega vel þrátt fyrir að þessi verkefni hafi vaxið mér svolítið í augum.

Þegar ég loks komst til þess að vinna verkefnin þá fannst mér þetta bara ágætt, en ég er samt enginn snillingur í þessu dæmi.

Núna get ég þó klórað mig fram úr hlutum sem ég treysti mér ekki til þess að gera áður en ég byrjaði í þessum áfanga.

Mér finnst þó að þessi áfangi megi vera annars staðar í náminu. Þá á ég við að mér þætti mun hentugara að hafa hann fyrr í náminu. Ekki á næst síðasta ári.

Takk fyrir góðan vetur!

Mikill léttir!

apríl 15, 2009

Já þessi önn er búin að vera frekar mikið strembin.

Maðurinn minn er úti á sjó, ég er að vinna, í skólanum og svo er ég með 2 börn og heimili sem ég þarf að sinna.

Fyrir utan þetta hef ég verið frá vegna veikinda og voru verkefnin farin að íþyngja mér all verulega.

En í fyrrakvöld þá náði ég að klára þau verkefni sem ég var komin á eftir með og þvílíkur léttir sem því fylgdi.

Nú er stefnan tekin á það að skila síðasta verkefninu á réttum tíma:)

Stórt og erfitt verkefni!

mars 1, 2009

Vá hvað mér finnst þetta vera erfitt verkefni. Það er samt hellingur sem ég er að læra á þessu, en þetta er þvílík vinna að mínu mati.

Mér finnst þessi áfangi með erfiðari áföngum sem ég hef farið í. Hæfileikar mínir liggja bara á öðru sviði en tæknisviði.

Við erum samt þrjár búnar að vera að hjálpast að við þessi verkefni og erum sammála um það að okkur finnist þetta sko ekki auðvelt.

En jæja! Best að halda áfram;)

Blogfærsla 1.

febrúar 24, 2009

Ég verð nú bara að viðurkenna að mér finnst ég svolítið týnd í þessu námskeiði.

Ég er ALLS EKKI sú tölvuvæddasta og er ekki nógu dugleg að prófa mig áfram, þannig að þ.a.l. finnst mér ég alltaf vera hálf stopp. En nú erum við sem sagt mættar hérna þrjár stöllur heim til mín og erum að vinna í því að ljúka eins mörgun verkefnum í þessum áfanga og við mögulega getum.

Við höfum nefnilega verið mjög duglegar að hjálpast að í gegnum skólann. Við vegum eiginlega hvor aðra upp. Á meðan ein er góð í einhverju þá er önnur góð í einhverju öðru.

Þannig að mér finnst þetta mjög gott fyrirkomulag.

Jæja! Ætli sé ekki best að fara að koma sér að verki.

Bless í bili.

Upphaf!

febrúar 4, 2009

Velkomin á síðuna mína!

Hér mun ég koma til með að skrifa hugmyndir mínar um verkefnavinnuna í Upplýsingatækni.

Þetta verkefni finnst mér skemmtilegt því það er gott að kunna að búa til síður.

Hello world!

febrúar 4, 2009

Welcome to WordPress.com. This is your first post. Edit or delete it and start blogging!


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.